31.5.2009 | 17:04
Það sauð upp úr hjá henni en gerir ekkert til.
Þótt söngsúpan hennar Boyle hafi aðeins soðið yfir í keppninni, þá er þetta samt fallegt ævintýri sem fyrir mér undirstrikar þá visku að aldrei að dæma manneskju af útliti eða fyrstu kynnum.
Heimspeki Forrest Gumps á einnig við hér "life is like a box of chocolates. you never know what you are going to get" nema hér á það við um fólk.
Hún gast ekki upp og lét ekki neikvæðni eða fordóma fólks í kringum sig hafa áhrif á sig og héltsínu striki og þar minnir hún mig á ástkæra heyrnalausa froskinn minn sem er í miklu uppáhaldi hjá mér. Hann klifraði upp á fjallið óklífanlega, þrátt fyrir að allir segðu að hann gæti það ekki og ætti að hætta þessari vitleysu. Afhverju tókst honum þetta? Því hann heyrði ekki neikvæðnis raddirnar í kringum sig.
Ég vil vera í klappliðinu! Þú veist, því liði sem hvetur fólk til dáða og uppörvar það. Ég vil klappa fyrir þér sem átt erfitt. Þú getur þetta! hvað svo sem það er. Hið óklífanlega fjall, veistu, - froskurinn gat það og þú getur það líka. Engar aðstæður eru svo slæmar að ekki sé endir á þeim eða leið til að finna frið og hamingju á meðan að það versta gegnur yfir. trúðu mér, ég veit vel hvað ég er að tala um.
Andaðu djúpt, líttu heiminn í augun og segðu. "Þetta verður í lagi"
Boyle fær hundruð milljóna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Spaugilegt | Aukaflokkar: Bloggar, Heimspeki, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:10 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.