16.4.2007 | 09:13
Er þetta "dónaliðið" að læðast inn í landið á nýjan hátt? ;)
Nei varla er það nú, - þótt þetta lið vaði víst í pening og geti alveg "carpoolað" á nokkrum einkaþotum og ákveðið að hittast á einhverjum nýjum stað.
Þetta er bara nýja stöðutáknið á Íslandi. Fyrir nokkrum árum var það jeppinn góði, en nú er enginn maður með mönnum nema hann eigi einkaþotu með glasahaldara, rasshitara og gps staðsetningarkerfi sem talar íslensku.
Nú þarf bara að fara endurskipuleggja allt gatnakerfi Reykjavíkur svo íslenskir athafnamenn geti montað sig af nýju leikföngunum sínum utan flugvallanna líka.
Fyrir okkur hin, er komin á markaðinn "MiniMont 3000", - einkaþota litla mannsinns sem færir okkur lífsnauðsynlega vellíðan í sál okkar og gerir okkur samkeppnishæfa við stórlaxana... alla vega í huga litla mannsins
MiniMont 3000
Margar einkaþotur á Reykjavíkurflugvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.