Ég ætla selja aðgang að útsýni sem moldríkt fólk sér ekki á hverjum degi. Fólk sem öllu jafna hefur séð alla flottustu staðina í heiminum en á eftir eitthvað óséð, - eitthvað sem sker sig frá þeim stöðum sem þeir hafa verið á.
Hér kem ég til skjalanna með hefðbundið ghetto útsýni, nokkuð sem moldríka fólkið hefur ekki séð og upplifað í nærmynd. Ég myndi að sjálfsögðu rukka vel fyrir þessa einstöku upplifun sem býður upp á opnar ruslatunnur og pissandi hund sem hefur verið þjálfaður til að líta ræfilslega út og borða kfc leifar. Ég myndi rukka svona 250$ fyrir þetta. Hvernig líst ykkur á?
Indjánahöfðingjar og fyrrverandi geimfari í 1.200 metra hæð yfir Miklagljúfri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta minnir á ákveðna sambúð ákveðinna einstaklinga á ákveðinni tölvuleikjaöld þar sem uppvaskið sat jafnvel á hakanum vegna þess að Amiga tölvan þurfti alla athyglina!
Pétur Björgvin, 21.3.2007 kl. 09:12
Það voru yndislegir dagar... þangað til maður áttaði sig á því að það var tími til kominn að fullorðnast og byrja vaska upp... nokkuð sem er mitt verkefni á heimilinu í dag.. Pétur "Ultrawash 5000"
Brosveitan - Pétur Reynisson, 21.3.2007 kl. 09:27
Það má kannski líka reyna að selja aðgang að styttunni af G. Jaka sem á að fara að reisa í Breiðholtinu
Sigfús Sigurþórsson., 21.3.2007 kl. 10:34
Hundurinn er fyrir aftan myndatökumannin að pissa á buxnaskálmina hans...
og einnig er sett upp tréprammi og 1x1 fm plexigler á standi til að horfa í gegnum...
Brosveitan - Pétur Reynisson, 21.3.2007 kl. 11:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.