Lenti Í árás hættulegs dýrs !! Ég hef ákveðið að skipta um bensínstöð í kjölfarið...

essoÞað virðist vera sem Esso ljónið hafi verið í vondu skapi í gær.  Kannski fengið sér of mikið lífrænt bensín á drekka eða er á móti útlendingum.

En að ráðast á fólk og meiða það er full mikið af því góða og ég hef ákveðið að versla við Skeljung í staðinn.  Varla getur hörpuskelin farið að gerast ofbeldisfull?  hvað gæti hún gert? klemmt puttann minn meðan ég er að dæla á bílinn?


mbl.is Kom slasaður á Essóstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björgvin Gunnarsson

Myndirðu gera grín að þessu ef þetta væri pabbi þinn eða einhver nákominn sem lenti í að vera barinn? Ég efast um það, pössum okkur á smekkleysunni.

Björgvin Gunnarsson, 5.3.2007 kl. 12:36

2 Smámynd: Brosveitan - Pétur Reynisson

Þetta er reyndar rétt hjá þér. 
Ég fór tilbaka og las fréttina betur.  Hann var víst kannski mikið slasaður.  Það er stundum erfitt að finna mörkin en þetta hefur greinilega komið við þig og í þessu tilfelli fór ég yfir strikið og biðst fyrirgefningar á því.  Ég mun reyna að passa mig betur í framtíðinni. 

Brosveitan - Pétur Reynisson, 5.3.2007 kl. 12:44

3 Smámynd: Brosveitan - Pétur Reynisson

hmmm, jú reyndar er þetta tígrisdýr.  Ég þarf greinilega að fá mér kaffibolla áður en ég skrifa svona bloggfærslu.  Minn að tala um einhver ljón...

Brosveitan - Pétur Reynisson, 5.3.2007 kl. 12:59

4 Smámynd: Björgvin Gunnarsson

Ekkert mál, þetta er fín síða hjá þér btw. :)

Björgvin Gunnarsson, 5.3.2007 kl. 14:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband