Plís plís ekki kaupa nýjustu plötu "hennar sem ekki má nefna"

Ég var alltaf einn af þeim sem var innilega á móti Sylvíu frá degi eitt og er enn.  Ég vona einnig að loks fái fólk núna leið á henni og sjái hana eins og hún er:  Fulltrúi verstu myndar af lágmenningu sem til er.  Það er bara lélegur brandari og tómt prump að segja að hún sé á vitsmunalegan hátt að gera grín að menningu okkar a la Paris Hilton stæll.  Það grín er löngu liðið.  Enginn erlendis mun nokkurn tíma fatta það grín og taka henni sem hún er að leika:  Fífl!   Ég hló aldrei og þið hin sem enn eruð að lofa hana ættuð að átta ykkur að því að hún var að hafa ykkur öll að fíflum og er enn.

segja að Sylvía sé æði og snjöll og allt það er eins og að vera keisarinn sem lét telja sér trú mum að hann væri mklæddur svo flottum fötum.  "well guess what" þið eruð öll berrössuð að lofa keisarynjuna, sem nema hvað er fullklædd og hlær að ykkur sem eruð enn að elta hana.

bíð ég eftir því að "blogg botinn" hennar skanni síðuna mína og hún eða fulltrúi hennar komi með einhverjar athugasemdir varðandi skrif mín.  Hún vílar sér ekki að sökkva svo langt niður.  En briljant ekki satt?  Svo snjöll hún er, ógissla snjöll.  Eftir viku býr hún til vírus og hakkar tölvurnar okkar... ógissla snjöll, ekki satt.  Svo hrækir hún í andlitið á ömmu þinni, - ógissla snjöll...

VAKNIÐ!!

vita ekki hvenær á að hætta hefur aldrei verið eins yfirþyrmandi ljóst og núna og ef þú slysast til þess að lesa þetta Eva mín, gerðu okkur öllum greiða og sjálfri þér, - hættu núna.

Smellið hér til að horfa á vefsjónvarp


mbl.is Silvía Nótt herjar á bloggara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já já Pétur minn.. Ég er komin með ógeð líka af þessari manneskju en það er samt gaman að horfa á hana gera sig að fífli. Þetta er svona góð leið til að hlæja virkilega af einhverjum öðrum án þess að þurfa skammast sín. Mamma sagði alltaf "þú átt að hlægja með fólki, ekki af því"
Þetta er samt alveg að fjara út þetta hlægjilega og finn ég mig oft vorkenna henni. En svona er bara Silvía.. Það er líka alveg furðulegt að fólk skuli skrifa undir samning við hana, það er eins og að segja að við Íslendingar séu svo fáranlega endalaust meðtækileg á svona rugl!!!
Mér langar alveg virkilega mikið að koma heimilisfanginu þínu til hennar og sjá svo viðbrögðin þín við heimsókn hennar á skjá einum.. En heppnin er með þér að þú býrð hinum megin á landinu og ég efast um að hún færi alla þessa leið út af einni blogg færslu.. :)

Skonsan (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 12:29

2 Smámynd: Brosveitan - Pétur Reynisson

 nei hún færi varla að fara til Patreksfjarðar, Smjörgötu 14b..

Brosveitan - Pétur Reynisson, 13.2.2007 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband