Sjónmengun inni á Google Earth!

can1Alltaf þurfum við að verða öfgafólk í öllu sem við gerum!  Yfirheyrilegur áhugi okkar á plönturækt er farinn að vekja athygli inni á Google Maps og það slíkt að kvartanir berast að ekki verði lengur hægt að horfa á landið utan úr geim vegna þessa áhuga okkar og muni eyðileggja ímynd okkar.

 Aðrir benda hinsvegar á að þetta sé einungis liður í landgræðslu og áframhaldi af því ferli að gera landið aftur skógi vaxið frá fjöru til fjalls. 

 

can2

 


mbl.is Kannabisræktun í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 13.5.2009 kl. 12:23

2 Smámynd: TARA

 ROTFL 





TARA, 13.5.2009 kl. 12:49

3 Smámynd: Eygló

Besta lengi!!!!  Takk.

Eygló, 13.5.2009 kl. 14:20

4 Smámynd: Brosveitan - Pétur Reynisson

Þakka þér fyrir það Eygló. Ég er ekki frá því að þessi fari á topp 10 listann hjá mér :-)

Eftir 1 ár gef ég svo út bók, verð ríkur og kaupi mér einkaþotu....

Brosveitan - Pétur Reynisson, 13.5.2009 kl. 14:24

5 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Svona fer kúgun með þjóðir. Kúgun er ávísun á spillingu. það eru ekki allir jafn sterkir andlega eins og Nelson Mandela. Ég vil sjá tekið á grunnvandanum. Grunnvandinn er ekki séríslenskur. Hann er spilling heimsinsins. Tökum ESB sem litla viðmiðun. Hvers vegna er evrópa eitthvað betri en restin af heiminum? Hafa ekki gerst ljótir hlutir í evrópu upp í gegnum árin? Er evrópa frelsuð? Held ekki en endilega leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér. það er á sveitamáli alltaf misjafn sauður í mörgu fé. Hef alltaf átt ervitt með að skilja að evrópa sé betri en restin af heiminum. Kanski vegna þess að ég hef kynnst svo mörgu góðu fólki frá öllum heimshornum. Hvernig líður okkur ef við erum í ESB og landamæri einhvers lands liggur að ESB? Ég gæti ekki útilokað fólk sem væri hinumegin við landamærin og sagt ja þeir eru ekki í ESB og á ekki rétt! Ómannúðlegt! Ég er svo mikill friðarsinni að öllum venjulegum Íslendingum finnst það heimska. Mannkynið á í mínum augum allt jafnan rétt. þetta er jafnréttisbarátta  með stóru J.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 13.5.2009 kl. 15:44

6 Smámynd: Brosveitan - Pétur Reynisson

ehhh, fyrirgefðu Anna en í allri vinsemd, ertu ekki að kommenta á eitthvað allt annað blogg? :-)

Brosveitan - Pétur Reynisson, 13.5.2009 kl. 15:50

7 Smámynd: Eygló

hahaha, kannski er Anna einmitt að því. Mér varð þetta á um daginn og hlaut þvílík viðbrögð að ég hélt ég yrði bannfærð á blogginu. Verið var að spjalla um eitthvað sakleysislegt, ég með allt aðra færslu í huganum og nefndi m.a. heilalausa minnisleysingja. Dýrin sluppu laus. Ég skýrði allt út og baðst afsökunar. Ekki það að Anna þyrfti þess.

Hvernig verður það MixMax, þú yrðir ríkur, keyptir þér einkaþotu, keyrðir allt á haus, yrðir óvinsæll með eindæmum og gerðist svo útlagi að eigin ósk.

Eygló, 13.5.2009 kl. 16:16

8 Smámynd: Brosveitan - Pétur Reynisson

Sko, einkaþotan mín er eitthvað svona 2009 dæmi. Hér er mynd af henni:

http://www.doyletics.com/images/30redbar.jpg

Heldur þú að ég sé að far á eitthvað neyslufyllerí? Nei minn er svakalega ábyrgur í öllu sem ég geri... ;-)

Brosveitan - Pétur Reynisson, 13.5.2009 kl. 16:23

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góður 

Ásdís Sigurðardóttir, 13.5.2009 kl. 16:30

10 Smámynd: Eygló

Þessi er nett og fín, en kannski meira til innanbæjarbrúks. Svo er útilokað fyrir forseta vorn og frú, að húkka far.

Eygló, 13.5.2009 kl. 16:50

11 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

he he er þetta nokkuð verri landgræðsla enn Lúpínan á sínum tíma...landið fýkur jú burt eða sagði ekki einhver frægur það einu sinni. Þetta er kanski hægt að selja ekki eigum við fiskin hvort eð er eða aðrar orkulindir.. Allt kjaupt og betalt. 'Uff nú verð ég bæði hengd og skotin ...Takk fyrir bloggvináttubeiðnina , vona að ég setji þig ekki upp við vegg. flott síða hjá þér. kv Sirrý.

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 13.5.2009 kl. 18:17

12 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Var nú bara að reyna að sjá hlutina í samhengi en tókst greinilega illa að koma því frá mer á skiljanlegan hátt. Afsakið. Gáfurnar eru ekki meir en guð gaf.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 14.5.2009 kl. 10:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband