Tilraunaútsendingar aftur í gang

gattinfrontþá er ég kominn aftur norður og farinn að vinna áfram að uppbyggingu Gáttarinnar.  Tilraunaútsendingar eru aftur byrjaðar og því hægt að sjá eitthvað gerast á vefsjónvarpinu.  Ég vona að ég geti sett í gang efnismeiri dagskrá kringum 10-15 febrúar og aukið efnið í nokkrum skrefum eftir það.

Endilega látið sem flesta vita af þessu framtaki og sjáið litla vefsjónvarpsstöð fara í gang sem fer nýjar og ódýrari leiðir.

Meðal þess sem er hægt að gera inni á Gáttinni  er að vera með videoblogg og senda inn eigið myndefni.  Vonandi eiga fleiri eftir að nýta sér þetta.  Á næstunni mun ég breyta virkni forritsinns, þannig að það taki ekki yfir skjáinn hjá notendum í byrjun og verði kurteisara.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband